Takk fyrir að kíkja í heimsókn

Heiu gerð VCS-Z21-22S 22kW á þremur fösum(400V) og 7,4 kW á einum fasa, ótrúlega nett stöð, þriggja fasa með TPU lipra og þægilega hleðslusnúru, það er auðvelt að skipta um hleðslusnúruna fyrir fagmann, stillanlegur straumur frá 6A til 32A með snerti takka framan á henni og man síðustu stillingu, kosturinn við að geta stillt strauminn er að það fer betur með batteríið í bílnum með enn hægari hleðslu og þegar verið er að þvo og þurrka elda og tala ekki um það nýjasta sánaofninn í gangi líka þá er lítið eftir af orku til að hlaða bílinn og því fínt að geta bæði lækkað strauminn og eða seinkað hleðslunni fram í nóttina þegar álagið er minna! , með upplýsingaskjá, AC30mA + DC6mA lekastraumsvörn og stenst lekastraums prófið. verð kr.76.900-.


Hleðslustöðvar verða að standast ítrustu öryggiskröfur það er ekki sjálfgefið að allar tegundir hleðslustöðva geri það þar sem að framleiðendur eru farnir að lengja roftíman sem má ekki vera lengur en 300ms í 400ms og jafnvel lengur en það. Heiu hleðslustöðin gerir það hins vegar vel undir 200ms enda er innbyggði lekastraumsrofinn í henni stilltur fyrir Íslenskar kröfur til að standast úttekt.



Hér fyrir neðan er hins vegar mæling af annarri tegund af hleðslustöð sem er ekki flutt inn af hledslustodvar.is, það fer ekki á milli mála hún stenst ekki prófið þrátt fyrir að vera með 30mA AC/6mA DC lekastraumsrofa!
Þessi breyting er til að mæta vandamálum í gömlum rafkerfum í Evrópu en á ekki við á Íslandi.


Heiu er "Plug and Play" byrjar að hlaða um leið og bílinn er settur í samband eða notað kort þegar það á við, T2 hulsa í bílinn, Grá að framan og svartur botn, tísku litirnir, Evrópu standard CE(EN62196), TUV, RoHS og UKCA merkt og þolir Íslenskt veðurfar. Type B lekastraumsvörn. Stærð H=26cm B=17cm og D=8cm, Á skjánum sést valinn Ampertala, spenna á milli tveggja fasa eða fasa og núll, signal spenna til hleðslutækis í bílnum, hlaðnar kílóvatt stundir, hleðslutími, hiti innan í stöðinni og tímaseinkunn ef það er valið.

Vatnsheld, truflanavörn(surge protection), tíðnivörn við of lága eða of háa tíðni stöðvast hleðslan til að verja innbyggða hleðslutækið í bílnum, yfirhitavörn, yfirspennu og yfirstraumsvörn og fl.
Samhæfð við alla bíla sem styðja Type 2 og Type 1 hleðslustaðlana. Gengur bæði á einna, tveggja og þriggja fasa bíla 1N~230V og 3N~400/230V kerfum.


Tekur lítið pláss eins og sjá má á þessari mynd.


Sjá video Heiu VCS-Z21-22S með skjá 32A


Engar flóknar stillingar!

Sendu mér mail hér gunnthorarna@outlook.com

gunnthorarna@outlook.com